Nýtt VR blað er komið út!
Almennar fréttir
21.09.2018
Þriðja tölublað VR blaðsins er komið út og er því dreift um allt land með Fréttablaðinu. Magnús L. Sveinsson, fyrrverandi formaður VR, ræðir við ritstjóra VR blaðsins um komandi kjarabaráttu en Magnús man svo sannarlega tímana tvenna í þeim efnum. Mikil aukning hefur átt sér stað í sjúkrasjóði VR á undanförnum árum og er farið yfir stöðuna í blaðinu.
Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur hjá Heilsuborg og Erla Gerður Sveinsdóttir, læknir hjá Heilsuborg, fjalla um mikilvægi þess að sofa og hvílast vel í grein sinni „Skipuleggur þú líf þitt á nóttunni?“