Varst þú að missa vinnuna?
Almennar fréttir
04.01.2019
VR býður félagsmönnum sínum, sem hafa nýlega lent í uppsögn af hálfu atvinnurekanda, á fund. Sérfræðingar á kjaramálasviði VR fara yfir réttarstöðu starfsmanns gagnvart starfslokum, umsóknarferli atvinnuleysissjóðs og praktísk atriði fyrir atvinnuleitina.