Breytingar á samþykktum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Almennar fréttir
21.06.2017
Á aukaársfundi Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna, sem haldinn var í dag miðvikudaginn 21. júní, voru kynntar breytingar á samþykktum sjóðsins. Breytingarnar koma til vegna nýrrar deildar í sjóðnum, c-deildar, sem tekur við tilgreindri séreign í samræmi við samkomulag Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins frá janúar 2016.
Stjórn Lífeyrissjóðsins samþykkti breytingar á samþykktum sjóðsins á fundi 30. maí 2017.