VR leitar að nafni á nýtt orlofshús
Almennar fréttir
02.03.2017
VR lauk nýlega við byggingu á stóru og glæsilegu orlofshúsi í orlofshúsabyggð sinni í Miðhúsaskógi. Af þessu tilefni efnir félagið til nafnasamkeppni fyrir orlofshúsið en í verðlaun er helgardvöl í nýja húsinu.
Vinsamlegast sendu tölvupóst á vr@vr.is undir yfirskriftinni „nafnasamkeppni“ með þinni hugmynd að nafni á húsið ásamt nafni þínu og kennitölu. Nafnasamkeppnin stendur yfir til 31. mars og verður vinningshafinn kynntur á Facebooksíðu VR og vef VR, vr.is, í byrjun apríl.