Launamunur kynjanna óbreyttur milli ára
Almennar fréttir
15.09.2016
Frá janúar 2015 til apríl 2016 hækkuðu grunnlaun félagsmanna VR um 14,3% og heildarlaun þeirra um 15,8%. Þetta er meðal þess sem fram kemur í árlegri launakönnun meðal félaga VR sem birt er í dag. Launahækkun VR félaga er í takt við breytingar á launavísitölu Hagstofu Íslands sem hækkaði um 14,5% á sama tíma og launavísitölu VR sem hækkaði um 15,5%.