Vefspjall Mán-fim: 8:30-15:30 Fös: 8:30-14:30
Sími 510 1700
Hafðu samband
Opnunartímar skrifstofu
Almennar fréttir
15.05.2019
Heildarlaun félagsmanna VR voru 652 þúsund krónur að meðaltali í febrúar 2019 en miðgildi heildarlauna var 600 þúsund. Grunnlaun voru að meðaltali 644 þúsund en miðgildi grunnlauna var 591 þúsund. Þetta er niðurstaða launarannsóknar VR á launum í febrúar.
14.05.2019
Ársfundur deildar VR í Vestmannaeyjum verður haldinn þriðjudaginn 21. maí nk. kl. 12.00 í Eldey, Goðahrauni 1.
13.05.2019
Ársfundur deildar VR á Suðurlandi verður haldinn miðvikudaginn 22. maí nk. kl. 19.00 á Austurvegi 56, Selfossi (3. hæð).
10.05.2019
Á fundi stjórnar VR 8. maí sl. var samþykkt að auka fjölda þeirra gjafabréfa hjá Icelandair sem félagsmenn VR mega kaupa á hverju almanaksári. Gildir það frá 1. janúar 2019.
06.05.2019
Ársfundur deildar VR á Austurlandi verður haldinn á Bókakaffi, Egilsstöðum, fimmtudaginn 9. maí 2019 kl. 18:30.
30.04.2019
Dregið hefur verið í happdrætti sem haldið var í tengslum við könnun VR á Fyrirtæki ársins 2019. Búið er að hafa samband við vinningshafana.
29.04.2019
VR vill árétta að orlofsuppbót og orlofsuppbótarauka skuli greiða eigi síðar en 2. maí 2019. Orlofsuppbót skv. kjarasamningum VR er kr. 50.000 fyrir árið 2019 m.v. fullt starf. Á árinu 2019 greiðist sérstakt álag á orlofsuppbót kr. 26.000 og er uppbótin því kr. 76.000 fyrir 2019 m.v. fullt starf.
Í Reykjavík verður hitað upp fyrir kröfugöngu með léttu skemmtiskokki og hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin hefst kl. 11:30 og munu Jói P og Króli ásamt Wally frá Sirkus Íslands halda uppi fjörinu á Klambratúni.
26.04.2019
VR hvetur alla félagsmenn til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi sem verða haldnir í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí næstkomandi.
24.04.2019
Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna VR í kosningu fyrir nýgerða kjarasamninga liggja nú fyrir.
23.04.2019
Fullgildum félagsmönnum VR stendur til boða að kaupa útilegukortið fyrir sumarið 2019. Kortið veitir tveimur fullorðnum og allt að fjórum börnum upp að 16 ára aldri gistingu á 41 tjaldsvæði víðsvegar um landið.
17.04.2019
Frá og með deginum í dag 17. apríl 2019 mun hámark greiðslutímabils sjúkradagpeninga úr Sjúkrasjóði VR fara úr 9 mánuðum í 7 mánuði. Var þetta samþykkt á síðasta stjórnarfundi VR.