Stjórnaðu streitunni! Haustráðstefna VR um forvarnir gegn kulnun
Almennar fréttir
20.11.2019
VR býður á ráðstefnu um forvarnir gegn kulnun, fimmtudaginn 28. nóvember 2019, kl. 8.30 -12.00 á Grand Hótel Reykjavík. Markmið ráðstefnunnar er að fá saman fræðimenn á fjölbreyttum sviðum til að veita góð ráð um hvernig hægt er að viðhalda góðri heilsu og fyrirbyggja kulnun en einnig hvernig hægt er að snúa við óheillavænlegri þróun með lífsstílsbreytingum.