Auglýsingar VR
Þekktu þín mörk - Gleymska
Hann skilar öllu á réttum tíma og er með bestu sölutölurnar aftur og aftur. Svo rekst hann á vegg. Kannast þú við þessar aðstæður? Kynntu þér einkenni kulnunar á VR.is.
Þekktu þín mörk - Pirringur - Símtal
Vissir þú að pirringur er eitt af einkennum kulnunar? Ef það þarf lítið til að koma þér úr jafnvægi eða allt í kringum þig fer í taugarnar á þér ættirðu að kyrra hugann og kynna þér einkenni kulnunar á VR.is
Þekktu þín mörk - Pirringur - Prentari
Hún er á framabraut og heldur bestu kynningarnar í bransanum. En eitthvað er í ólagi. Kannast þú við þessar aðstæður? Kynntu þér einkenni kulnunar á VR.is.
Þekktu þín mörk - Svefnleysi
Vissir þú að svefnleysi er eitt af einkennum kulnunar? Ef þú byltir þér meira en þú sefur eða telur kindur hraðar en meðaljóninn ættirðu að kynna þér einkenni kulnunar á VR.is
Þekktu þinn rétt - Hvíldartími
Þekktu þinn rétt herferðin hafði það að markmiði að vekja félagsmenn til umhugsunar um rétt sinn. Santos starfaði í veitinga- og hótelrekstri í Sao Paolo áður en hann flutti til Íslands fyrir 20 árum. Í Brasilíu á hann sex systur og fjóra bræður. Hér á Íslandi á hann eiginkonu og þrjú börn. Honum finnst íslenskur matur ennþá skrítinn.
Þekktu þinn rétt - Lágmarkslaun
Þekktu þinn rétt herferðin hafði það að markmiði að vekja félagsmenn til umhugsunar um rétt sinn. Nína Margrét er 18 ára Hafnfirðingur á náttúruvísindabraut Kvennaskólans í Reykjavík. Hún hefur starfað sem danskennari og leikkona en hyggur á forritunarnám í Bandaríkjunum.
Þekktu þinn rétt - Veikindaréttur
Þekktu þinn rétt herferðin hafði það að markmiði að vekja félagsmenn til umhugsunar um rétt sinn. Krzysztof sigldi um heimsins höf með frönsku fraktskipi áður en hann kom til íslenskrar hafnar fyrir 15 árum. Krzysztof er giftur og á dóttur í Englandi. Hann spilar handbolta, körfubolta og blak í frístundum.
Þekktu þinn rétt - Orlof
Þekktu þinn rétt herferðin hafði það að markmiði að vekja félagsmenn til umhugsunar um rétt sinn.
Sigrid er 46 ára Eistlendingur. Hún hefur búið á Íslandi í 11 ár. Í Tallinn starfaði hún sem dansari og danskennari og kom m.a. fram í Sound of Music, Miss Saigon og Oliver. Fjallgöngur og útivist eru hennar ær og kýr.
Þekktu þinn rétt
Þekktu þinn rétt herferðin hafði það að markmiði að vekja félagsmenn til umhugsunar um rétt sinn. Helstu upplýsingar úr kjarasamningi VR og SA voru tekin saman á 6 tungumálum: Íslensku, ensku, pólsku, litháísku, filipísku og tælensku.
Hvíldartími - Jól 2016
Vinnutíma skal haga þannig að á hverjum sólarhring, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmaður a.m.k. 11 klst. samfellda hvíld. Verði því við komið skal dagleg hvíld ná til tímabilsins milli kl. 23:00–6:00. Óheimilt er að skipuleggja vinnu þannig að vinnutími fari umfram 13 klst.