Tengslanetið er árangursríkasta leiðin í leit að nýrri vinnu
Launakönnun
26.07.2017
Tengslanetið er ein árangursríkasta leiðin í leitinni að nýju starfi, að mati svarenda í launakönnun VR 2017. Að hafa beint samband við fyrirtækið þess sem leit á netinu koma þar fast á eftir. Í launakönnun félagsins í ár fékk helmingur þátttakenda spurninguna hvort þeir hefðu skipt um starf á síðustu tveimur árum og ef svo var, hvaða aðferðum þeir hefðu beitt. Alls höfðu rúmlega tólf hundruð manns skipt um starf á árunum tveimur áður en könnunin var gerð, þ.e. á árunum 2015 eða 2016. Það er um þriðjungur þeirra sem svöruðu spurningunni.