Láttu það ganga
Almennar fréttir
28.09.2020
Það var snjöll auglýsingaherferð sem fór af stað í mánuðinum sem Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og önnur samtök atvinnurekenda ýttu úr vör undir yfirskriftinni “Láttu það ganga”. Tilgangurinn var augljós og viðeigandi í núverandi efnahagsástandi; að fá íslenskt launafólk til að beina viðskiptum sínum að íslenskum framleiðendum, kaupa íslenska þjónustu og þannig stuðla að auknum hagsauka fyrir íslenskt atvinnulíf, minnka atvinnuleysi o.s.frv.