Vefspjall Mán-fim: 8:30-15:30 Fös: 8:30-14:30
Sími 510 1700
Hafðu samband
Opnunartímar skrifstofu
Almennar fréttir
30.11.2020
Grái herinn, baráttuhópur eldri borgara, skorar á alþingismenn að hækka ellilífeyri um 15.750 kr. til samræmis við almenna launahækkun fyrir árið 2021 hjá ASÍ, BSRB og BHM.
27.11.2020
Heimilin í landinu hafa setið eftir í aðgerðum stjórnvalda sem eiga að tryggja viðspyrnu í kjölfar Covid faraldursins, eins og fram kemur á vef VR.
25.11.2020
Stjórnvöld stæra sig af því að hafa síðustu misseri kynnt úrræði sem nema um 340 milljörðum króna til að tryggja viðspyrnu í kjölfar Covid faraldursins. Langstærstum hluta þessa fjármagns er beint til fyrirtækjanna, um 300 milljörðum.
10.11.2020
Nýr kjarasamningur við Rio Tinto í Straumsvík var samþykktur með ríflega 90% atkvæða. Alls tóku um 70% félagsmanna í Híf og VR sem starfa í álverinu þátt í atkvæðagreiðslunni.
07.11.2020
Sá ógeðfelldi gjörningur gegn grandalausum félagsmönnum VR átti sér stað í vikunni sem leið að skiptastjóri þrotabús bakarískeðjunnar Jóa Fel, sendi fyrrum starfsfólki fyrirtækisins lögfræðibréf þar sem fólki var gert að gera grein fyrir meintum skuldum þess við fyrirtækið/þrotabúið.
03.11.2020
Það var á þessum degi fyrir 120 árum, þann 3. nóvember árið 1900, sem fyrsta konan fékk inngöngu í VR. Frú Laura Hansen rak verslun með eiginmanni sínum Johannesi Hansen að Austurstræti 3.
02.11.2020
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, birti í dag færslu á Facebook þar sem hann biðlar til almennings að sýna starfsfólki verslana kurteisi og virðingu.
Atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og Verkalýðsfélagsins Hlífar og VR hins vegar hefst fimmtudaginn 5. nóvember 2020 klukkan 11:00.
27.10.2020
SVÞ og VR sendu í dag hvatningu og tillögur til stjórnvalda um stefnumótun og aðgerðir í stafrænum málum.
24.10.2020
24. október 1975 lögðu konur niður launuð sem ólaunuð störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Í dag, 45 árum síðar, er framlag kvenna til samfélagsins ekki enn að fullu metið að verðleikum.
21.10.2020
Þing Alþýðusambands Íslands verður sett í dag kl. 10:00 en þingið verður með breyttu sniði í ár vegna Covid-19 faraldursins. Í stað þriggja daga þings nú í október verður haldið fjögurra tíma fjarþing og þingi svo frestað til vors. VR mun eiga 90 þingfulltrúa á þessu þingi.
44. þingi Alþýðusambands Íslands var frestað nú á fjórða tímanum í dag. Eingöngu brýn mál voru afgreidd á þinginu, þar á meðal skýrsla forseta, afgreiðsla reikninga og kosið í embætti. Þá var tillaga um að fjölga varaforsetum úr tveimur í þrjá samþykkt.