Kjarasamningar samþykktir
Almennar fréttir
21.03.2024
Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félagsfólks VR um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda liggja nú fyrir. Kjarasamningur VR við SA var samþykktur með 78,56% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 5485 VR félagar og nei sögðu 1325 eða 18,98%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 172 eða 2,46%.