Um bókanir orlofshúsa
Almennar fréttir
03.01.2017
Við viljum minna félagsmenn VR á að til að bóka orlofshús félagsins þarf að skrá sig inn á Mínar síður, annað hvort með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2017 og fram á mitt ár 2018 sem hér segir:
Fimmtudaginn 5. janúar 2017 kl.19.00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa 27. maí – 2. september hjá þeim sem hafa ekki fengið úthlutað orlofshúsi sl. þrjú sumur.
Föstudaginn 6. janúar 2017 kl. 14.00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2014, 2015 eða 2016.
Fimmtudaginn 12. janúar 2017 kl. 10.00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa tímabilið 1. september 2017 - 1. júní 2018.
Skrifstofa VR í Reykjavík verður opin að kvöldi 5. janúar frá kl. 18:50 – 20:30 og geta félagsmenn, sem ekki bóka á vefnum, komið á skrifstofu félagsins til að bóka. Þá verður einnig tekið við bókunum í síma 510 1700 frá kl. 19.00 þann sama dag.
Athugið að innskráning á Mínar síður VR frá k. 14:00 -24:00 fimmtudaginn 5. janúar leiðir notanda beint á orlofsvef VR en ekki verður hægt að sækja um aðra þjónustu hjá VR en að bóka orlofshús. Er þetta gert til þess að draga úr álagi á kerfið á meðan bókanir orlofshúsa standa yfir. Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.