Nóbelsverðlaun veitt vegna rannsókna á launamun kynjanna
Almennar fréttir
10.10.2023
Claudia Goldin hlaut í gær, mánudaginn 9. október 2023, hagfræðiverðlaun sænska Seðlabankans til minningar um Alfreð Nóbel árið 2023. Goldin er prófessor við Harvard háskóla í Bandaríkjunum og er þriðja konan sem hlýtur Nóbelsverðlaunin í hagfræði síðan þau voru fyrst veitt árið 1969.