Ætlar þitt fyrirtæki að taka þátt í Fyrirtæki ársins 2023?
Almennar fréttir
17.01.2023
Könnun á Fyrirtæki ársins er gerð árlega meðal alls félagsfólks VR. Fyrirtæki geta boðið starfsfólki utan VR þátttöku og tryggt þannig að allt starfsfólkið, óháð stéttarfélagsaðild, fái tækifæri til að taka þátt og láta í ljós skoðun sína á stjórnun og starfsumhverfi.