Kjarasamningar VR samþykktir
Almennar fréttir
21.12.2022
Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félagsfólks VR í kosningu um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda liggja nú fyrir.
Kjarasamningur VR við SA var samþykktur með 81,91% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 7.808 VR félagar og nei sögðu 1.504 eða 15,78%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 220 eða 2,31 %.