Fyrirlestur um karlmenn og #metoo byltinguna
Almennar fréttir
09.04.2018
Næsti fyrirlestur fyrir félagsmenn VR fer fram 12. apríl nk. kl.12:00. í sal VR á 0.hæð í Húsi verslunarinnar.
Gestur Pálmason, stjórnendaþjálfari, fjallar um #metoo byltinguna og talar út frá sjónarhorni karlmanna sem að vilja axla ábyrgð og vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Í fyrirlestrinum deilir Gestur reynslu sinni af þátttöku í hreyfingu karlmanna sem kalla sig #egertil, skoðar #metoo byltinguna í víðu samhengi ásamt því að viðra hugmyndir sínar um þau tækifæri sem hreyfingin hefur opnað fyrir og skapað.