Aðalfundur VR verður haldinn miðvikudaginn 26. mars 2025 kl. 19:30 í salnum Háteig á hótel Reykjavík Grand. Fundurinn fer fram bæði sem staðfundur og fjarfundur í senn.
Félagsfólk sem ætlar að sækja fundinn verður að skrá sig fyrirfram á vef VR fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi og skrá sig annað hvort á stað- eða fjarfund.
Túlkun á ensku verður einungis í boði á Teams. Félagsfólk sem þarfnast túlkunar á staðfundi, vinsamlega komið með viðeigandi búnað og heyrnartól.
Allar kosningar á fundinum verða ýmist með handaruppréttingu eða rafrænar og fundargestir auðkenna sig inn á fjarfund með rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að öll sem mæta á fundinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum. Ef félagsfólk lendir í tæknilegum vandræðum er hægt að hafa samband í síma 820 1700 frá kl. 19:00. Við hvetjum fólk til að skrá sig tímanlega á fjarfundinn.
Dagskrá aðalfundar
- Kosinn fundarstjóri.
- Kosinn ritari.
- Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins undanfarið starfsár.
- Reikningar félagsins fyrir liðið ár lagðir fram til samþykktar.
- Tillaga stjórnar um framlag í VR varasjóð.
- Tillaga stjórnar vegna endurskoðunar styrkveitinga VR.
- Tillaga stjórnar um sameiningu VR og Leiðsagnar – félags leiðsögufólks
- Lagabreytingar.
- Lýst kjöri formanns, stjórnar og trúnaðarráðs.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu og tveggja félagslega kjörinna skoðunarmanna.
- Ákvörðun félagsgjalds.
- Ákvörðun um laun stjórnarmanna og skoðunarmanna.
- Önnur mál.
Fundargögn
- Ársreikningur 2024
- Tillaga stjórnar um lagabreytingar
- Tillaga stjórnar um framlag í VR varasjóð
- Tillaga stjórnar vegna endurskoðunar styrkveitinga VR
- Tillaga stjórnar um sameiningu VR og Leiðsagnar – félags leiðsögumanna
- Aðrar tillögur stjórnar
- Ársskýrsla VR 2024 - 2025

