Netnámskeið fyrir einstaklinga og framhaldsskóla
VR-Skóli lífsins er netnámskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Hvernig fæ ég vinnu? Hvað á ég að fá í laun? Hvað er jafnaðarkaup? Þessum spurningum og ótal fleirum er svarað - á mannamáli. Netnámskeiðið tekur um 60 mínútur.
Einstaklingar sem eru 16 ára eða eldri geta skráð sig sjálfir í skólann og oft mæla fyrirtæki með skólanum í nýliðaþjálfun. Tilgangurinn er að fræða og upplýsa ungt fólk um réttindi sín og skyldur til að styrkja stöðu þess á vinnumarkaði.
Netnámið er einnig vinsælt námsefni í framhaldsskólum. Kennarar geta fengið aðgang að kerfinu með því að hafa senda tölvupóst á vrskolilifsins@vr.is. Kennari fær þá kennaraaðgang þar sem hann getur búið til sína hópa og fylgst með framvindu nemenda. Fyrir framhaldsskólahópa tekur námið tvær kennslustundir. Netnámið tekur um 60 mínútur og hægt að fara í gegnum það í kennslustund eða í heimavinnu. Þegar nemendur hafa lokið við netnámið er verklegur tími með kennara ein kennslustund. VR veitir skólunum aðgang að námsefninu þeim að kostnaðarlausu.
1. Netnám hvar sem er
Lífleg myndbönd og stuttir skýringartextar.
2. Verkefni
Lauflétt verkefni í lok hvers hluta.
3. Námsmat
Skírteini sem er frábær viðbót við ferilskrána.
1. HLUTI - ATVINNULEIT
HVAR ÁTTU AÐ BYRJA ATVINNULEITINA?
Hvar viltu vinna? Hvar liggja möguleikar þínir? Hvar nýtist starfsreynsla þín og menntun? Með því að hafa þetta til hliðsjónar við atvinnuleitina er líklegra að þú fáir vinnu þar sem hæfileikar þínir nýtast og að þér líði vel.
2. HLUTI - UMSÓKN
LÁTTU FERILSKRÁ OG KYNNINGARBRÉF FYLGJA UMSÓKN
Þegar þú sækir um vinnu er ekkert endilega víst að atvinnurekandinn viti nokkuð um þig. Umsóknin, ferilskráin og kynningarbréfið eru þitt tækifæri til að sýna honum/henni að þú sért rétta manneskjan í starfið.
3. HLUTI - STARFSVIÐTAL
ÞAÐ SEM ÞÚ ÞARFT AÐ HAFA Á HREINU Í STARFSVIÐTALI
Tilgangurinn með starfsviðtali er að þér og sjá hvort að þú sért rétti aðilinn í starfið. Mikilvægt er að koma vel fyrir og þá skiptir stundvísi, snyrtilegur klæðnaður og undirbúningur miklu máli.
4. HLUTI - RÁÐNING
AÐ BYRJA Í NÝRRI VINNU
Vonandi er tekið vel á móti þér í nýju vinnunni. En ertu búin/n að skila inn reikningsnúmeri og skattkorti? Og veistu hvenær þú átt að vinna, hversu mikið og hvað þú átt að fá í laun?
5. HLUTI - STÉTTARFÉLAG OG SAMNINGAR
STÉTTARFÉLAGIÐ VERNDAR HAGSMUNI ÞÍNA
Ertu búin/n að skrifa undir ráðningarsamning? Færðu borgað í samræmi við kjarasamninga? Hvert áttu að leita ef þú heldur að sé verið að svindla á þér?
6. HLUTI - STARFSLÝSING
HVAÐ ÁTTU EIGINLEGA AÐ GERA Í VINNUNNI?
Það er krefjandi að byrja í nýrri vinnu, sérstaklega ef þú veist ekkert hvað þú átt að gera. Hver eru þín helstu verkefni? Hvernig virkar allt? Hvenær máttu fara í mat og kaffi? Vertu óhrædd/ur við að spyrja spurninga.
7. HLUTI - SKYLDUR STARFSMANNA
VEIKINDADAGAR OG HVERNIG MAÐUR HEGÐAR SÉR Í VINNUNNI
Þegar maður er í vinnu er maður að selja atvinnurekanda tíma sinn. Og þá getur maður ekki látið bara hvernig sem er. Er það til dæmis í lagi að þykjast vera veikur þegar maður þarf frí?
8. HLUTI - UPPSÖGN
ER BÚIÐ AÐ REKA ÞIG EÐA NENNIRÐU ÞESSU EKKI LENGUR?
Þú mátt alveg segja upp. En þá þarftu að skila inn formlegu uppsagnarbréfi og kannski þarftu að vinna uppsagnarfrest. Það sama á við um atvinnurekanda þinn. Hann má ekki segja þér upp hvenær eða hvernig sem honum/henni dettur í hug.
9. HLUTI - VINNUTÍMI
HVENÆR ERTU AÐ VINNA OG HVAÐ ÁTTU AÐ FÁ BORGAÐ?
Hvað áttu að fá borgað fyrir að vinna á kvöldin og um helgar? En á rauðum dögum? En á stórhátíðum? Hvað á maður að vinna mikið í hverjum mánuði? En ef maður vinnur meira en það?
10. HLUTI - SKYLDUR YFIRMANNS
ER YFIRMAÐURINN EKKI ÖRUGGLEGA GÓÐUR VIÐ ÞIG?
Hvernig líður þér í vinnunni? Er vinnuaðstaðan eins og hún á að vera? Veistu hvenær þú átt að vinna? Er vinnuplanið skýrt? Er komið rétt fram við þig? Hvernig er einelti skilgreint? Hvað er kynferðisleg áreitni?
11. HLUTI - LAUNASEÐILLINN
LAUNIN EIGA AÐ KOMA Í UPPHAFI HVERS MÁNAÐAR
Það á ekki að vera neinn leyndardómur hvað stendur á launaseðlinum. Lærðu að reikna út launin þín, gerðu þér grein fyrir hvað er dregið frá í skatta og önnur gjöld, og vertu viss um að þú fáir rétt útborgað í hverjum mánuði.
12. HLUTI - KYNBUNDINN LAUNAMUNUR
AF HVERJU FÁ KONUR LÆGRI LAUN EN KARLAR FYRIR SÖMU VINNU?
Þó að standi skýrt í lögunum að það megi ekki mismuna fólki þá er samt óútskýrður munur á launum karla og kvenna. Er ekki bara hægt að laga það? Hvað getur þú gert?
13. HLUTI - ÁBYRGÐ
ÞEGAR MAÐUR FINNUR AÐ MANNI ER TREYST EYKST SJÁLFSVIRÐINGIN
Þegar maður hefur tileinkað sér starf og verður góður í því er eðlilegt að manni sé treyst fyrir meiri ábyrgð. Er ekki eðlilegt að launin þróist í samræmi við aukna reynslu? Hvernig verður maður góður stjórnandi?