01. maí
Vr 1Mai Gangan 28

Tilkynningar

1. maí 2025

VR hvetur allt félagsfólk til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí.

Fjölskylduhlaup VR á Klambratúni

Í Reykjavík verður hitað upp fyrir kröfugöngu með léttu hlaupi og dagskrá fyrir alla fjölskylduna á Klambratúni. Söngvarinn og skemmtikrafturinn Jónsi stýrir dagskránni sem hefst kl. 11:30.

Árni Beinteinn og Sylvía Erla úr Bestu lögum barnanna hita upp fyrir hlaupið sem er 1,5 km leið í kringum túnið. Þátttaka er ókeypis og allir þátttakendur fá verðlaunapening.

VÆB mæta á svæðið og Hringleikur sirkuslistafélag verður á svæðinu. Boðið verður upp á ostaslaufur, safa og gos.

Öll velkomin!

Kröfuganga og verkalýðskaffi í Reykjavík

Í Reykjavík verður safnast saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti kl. 13:00 en við munum ganga þangað frá Klambratúni með Jónsa og Lúðrasveit verkalýðsins í fararbroddi. Kröfugangan leggur svo af stað kl. 13:30. VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsfólk í anddyri Laugardalshallar kl. 14:30 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Nánari dagskrá í Reykjavík og á öðrum félagssvæðum VR verður auglýst síðar.

Sjáumst 1. maí!