Námskeið fyrir sjálfstætt starfandi leiðsögumenn 9. janúar

Námskeið fyrir sjálfstætt starfandi leiðsögumenn - 9. janúar kl. 13:00-14:30

VR býður upp á námskeið fyrir sjálfstætt starfandi leiðsögumenn Leiðsagnar.

Námskeiðið verður haldið í sal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7 en einnig er hægt að vera með í gegnum Teams.

Farið verður yfir:

  • Hvaða gjöldum og kostnaði þarf að taka tillit til
  • Hvaða ábyrgð ber leiðsögumaður í ferðum
  • Umræður þar sem sérfræðingar svara fyrirspurnum.

Námskeiðið sjá sérfræðingar VR um ásamt lögmanni VR sem mun fara sérstaklega yfir tryggingahluta sjálfstætt starfandi.

Skráning á námskeiðið fer fram hér fyrir neðan. Ef óskað er eftir túlkun yfir á ensku þá verður sú beiðni að berast á sandra@vr.is fyrir þann 5. janúar.

Nauðsynlegt er að fylla út alla reiti og merkja hvort þú ætlir að sitja námskeiðið á staðnum eða rafrænt.

Veldu annan hvorn valmöguleikann