Fæðingardagur og -ár
28. apríl 1971
Félagssvæði
Reykjavík og nágrenni
Vinnustaður, starf og menntun
Ég hef verið ferðaráðgjafi hjá Air Atlanta í 15 ár. Ég var áður hjá Ferðaskrifstofu Íslands og þar áður hjá Icelandair.
Ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð, Iðnskólanum í Reykjavík og nam svo ferðaráðgjöf hjá Ferðamálaskóla Íslands en hef einnig setið ýmis námskeið í gegnum tíðina hjá NTV, Amadeus of.l.
Netfang: selmabg@internet.is

Reynsla af félagsstörfum
Ég hef verið félagsmaður VR alla mína vinnutíð, verið trúnaðarmaður hjá Air Atlanta síðan 2012 og svo í trúnaðarráði VR síðan 2014.
Ég hef einnig setið nokkur ASÍ & LÍV þing fyrir hönd VR.
Ég hef alltaf verið virk í félagsstörfum og hef setið í nokkrum nefndum á vegum VR.
Ég hef verið í stjórn VR síðan 2020, var varaformaður VR 2023-2024 og svo varamaður í stjórn VR 2024-2025.
Ég hef setið í Miðstjórn ASÍ sl. 3 ár.
Helstu áherslur
Ég tel mikilvægt að félagsfólk VR viti um réttindi sín og þá þjónustu sem VR hefur upp á að bjóða. Að bæta hagsmuni félagsfólks ásamt því að bæta kjör þess. Ég vil sjá að ráðstöfunartekjur félagsfólks verði það góðar að fólk geti náð endum saman og lifað vel af sínum ráðstöfunartekjum ásamt því að geta sinnt sínum áhugamálum og notið þess að vera til. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á kjaramálum og vil því taka þátt í að bæta kjör félagsfólks og auka kaupmátt okkar allra ásamt því að finna lausn á húsnæðisvanda margra VR félaga. Að VR haldi áfram með húsnæðisstefnu sína og fjölgi íbúðum enn frekar fyrir félagsfólk sitt.
Því óska ég eftir þínu atkvæði svo ég geti haldið áfram að vinna fyrir þig og alla hina VR félaga mína.