Umræða um samfélagsábyrgð hefur aukist á Íslandi á liðnum árum. Mörg fyrirtæki og félagasamtök hafa mótað sér stefnu um samfélagsábyrgð og sum hver innleitt viðeigandi ferla. VR er aðili að Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð og leggur fjölmörgum verkefnum á þeim vettvangi lið, enda er hlutverk stéttarfélaga í eðli sínu samfélagslegt. VR hefur tekið virkan þátt í umræðunni um jöfn laun kynjanna, einelti á vinnustöðum og réttindi erlends vinnuafls enda nær samfélagsábyrgð víða, meðal annars til mannréttinda. VR-Skóli lífsins undirbýr ungt fólk fyrir vinnumarkaðinn og kynnir því réttindi og skyldur í starfi. Námið stuðlar að auknu gagnsæi og þekkingu bæði í þágu starfsfólks og atvinnurekenda. Við flokkum og endurnýtum, bjóðum starfsfólki upp á vistvæna samgöngustefnu og leggjum okkar af mörkum til samfélagsmála.
Jafnlaunavottun
VR hefur verið í fararbroddi í baráttunni fyrir jöfnum launum karla og kvenna. Þegar Staðlaráð Íslands gaf út Jafnlaunastaðal ÍST 85:2012 í desember árið 2012 ákvað VR því að ríða á vaðið og hleypa strax af stokkunum Jafnlaunavottun VR sem byggði á og uppfyllti staðalinn. Á þeim tíma var ekki í sjónmáli að nokkur annar aðili gæti brugðist svo skjótt við en félagið taldi nauðsynlegt að útkomu staðalsins yrði tafarlaust fylgt eftir með vottunarferli. Nú þegar opinbert ferli er komið á jafnlaunavottun hefur VR hætt útgáfu Jafnlaunavottunar VR.
VR hefur hlotið Jafnlaunavottun frá Jafnréttisstofu sem staðfestir að jafnlaunakerfi félagsins tryggi að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Eineltisferli
Hjá VR starfar sérstakt teymi sem tekur á eineltismálum ef grunur um slíkt vaknar á vinnustað félagsfólks. Hér má lesa upplýsingar um einelti, afleiðingar þess og viðbrögð.
Erlent vinnuafl
VR hefur staðið vörð um réttindi erlends vinnuafls með það að leiðarljósi að tryggja að útlendingar sem starfa á íslenskum vinnumarkaði njóti kjara og annarra réttinda í samræmi við kjarasamninga og lög.
Umhverfisstefna
VR hefur markað sér stefnu í umhverfismálum. Samkvæmt skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA) er útlitið í sambandi við flesta álagsþætti sem hafa áhrif á náttúruna síður en svo uppörvandi. Þess vegna teljum við hjá VR mikilvægt að flokka og endurnýta eins mikið af rusli og við getum, því margt smátt gerir eitt stórt.
Samgöngustyrkir
VR leggur sitt af mörkum til að draga úr auknum vanda vegna umferðarþunga í þéttbýli. VR hvetur starfsfólk félagsins til að nýta sér aðra valkosti en einkabílinn til og frá vinnu og býður starfsfólki samgöngusamning. Með þessu sýnum við samfélagslega ábyrgð, stuðlum að betra umhverfi og eflum lýðheilsu.
Styrkir til samfélagsmála
VR ráðstafar ár hvert ákveðinni fjárhæð til góðgerðarmála, þar á meðal til hjálparsamtaka sem hafa það að leiðarljósi að aðstoða þá sem helst þurfa á stuðningi að halda yfir jólahátíðina.
VR-Skóli lífsins
VR-Skóli lífsins byggir fyrst og fremst á netnámi og er sérstaklega ætlaður 16 - 24 ára ungmennum, óháð stéttarfélagsaðild. VR-Skóli lífsins fjallar um réttindi og skyldur á vinnumarkaði með nýrri og skemmtilegri nálgun. Þátttakendur skrá sig til þátttöku og fylgjast með lífi ungrar stúlku taka sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Hjá VR verðum við vör við fjölgun þeirra fyrirtækja og skóla sem stuðla að þátttöku sinna ungmenna enda mikilvægt samfélagsverkefni sem varðar okkur öll.
Kynferðisleg áreitni
VR stóð fyrir viðamikilli könnun meðal félagsfólks í desember 2017 og fram í janúar 2018 en í niðurstöðum könnunarinnar kom fram að meira en önnur hver kona í VR hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi einhvern tíma á sínum starfsferli. Hér má sjá nánari umfjöllun um könnunina.
Samhliða könnuninni gaf félagið út auglýsingaefni auk þess að senda fyrirtækjum og starfsfólki þeirra auglýsingaefni. Hér má lesa um kynferðislega áreitni, afleiðingar þess og skyldur atvinnurekenda.