Úthlutun orlofshúsa hjá VR fyrir sumarið 2025 fer svona fram:
- VR félagi fer á Mínar síður og sækir um þrjá valkosti sem hann raðar í fyrsta, annað og þriðja sæti eftir því hvað hann myndi helst vilja.
- Hámarksleiga er ein vika á sumri fyrir hvern félaga.
- Nýtt kerfi dregur af handahófi út félagsfólk sem fær sendan tölvupóst að úthlutun lokinni.
- Séu tímabil laus eftir að úthlutun lýkur gildir fyrst koma fyrst fá.
Mikilvægar dagsetningar
- Opnað verður fyrir umsóknir þann 15. janúar.
- Lokað fyrir umsóknir þann 27. febrúar.
- Það skiptir ekki máli hvenær á tímabilinu félagsfólk sækir um, það á allt jafn mikla möguleika á að vera dregið út.
- 28. febrúar er dregið af handahófi í gegnum úthlutunarkerfið.
- Þau sem fá úthlutað orlofshúsi fá sendan tölvupóst.
- Félagsfólk hefur þá tvær vikur til að ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður.
- Þegar gengið hefur verið frá greiðslum fyrir úthlutun verður orlofseignum sem ekki fóru í útleigu aftur úthlutað þann 13. mars.
- Staðfesting og greiðslufrestur varðandi þessa seinni úthlutun verður frá 13. mars til 20. mars.
- Sama regla verður viðhöfð og áður að félagsfólk sem hefur fengið úthlutað orlofshúsi einhvern tímann síðustu þrjú sumur getur ekki sótt um í sumarúthlutun en getur sótt um laus hús að úthlutun lokinni, frá og með 25. mars.
Sumarúthlutun félagsins er ekki lengur bundin við einn dag í janúar eins og tíðkast hefur síðustu ár en breytingar voru gerðar á úthlutunarreglum félagsins árið 2024.