Almennar fréttir - 13.02.2023
VR styrkir Pieta samtökin
VR hefur veitt Pieta samtökunum styrk að upphæð 6 milljón króna, til að láta framkvæma rannsókn á sjálfsvígum á Íslandi. Sá vandi sem sjálfsvígum og sjálfsvígstilraunum fylgir er ekki takmarkaður við fjörtjón þeirra einstaklinga sem í hlut eiga. Sjálfsvígsatferli hefur óhjákvæmilega einnig alvarleg andleg, félagsleg og jafnvel líkamleg áhrif á vini og aðstandendur, og geta slík áhrif enst árum eða jafnvel áratugum saman.
Rannsóknin, sem VR styrkir, verður framkvæmd af hálfu Rannsókna & greiningar, fyrir hönd Pieta samtakanna. Rannsókninni er ætlað að vera lóð á vogarskálar aukinnar þekkingar á þessu sviði hér á landi. Einkum er rannsókninni ætlað að verða til gagns fyrir frekara þróunarstarf til varnar gegn sjálfsvígum á Íslandi. Niðurstaðna rannsóknarinnar er að vænta næsta haust og verður þá haldið málþing um þetta brýna viðfangsefni, sem hvílir á svo mörgum. Að sögn Dr. Sigríðar Bjarkar Þormar formanns stjórnar Pieta samtakanna er þörf á nákvæmri greiningu gagna til að átta sig betur á þeim þáttum sem mikilvægast er að beina forvörnum að eða leggja mesta áherslu á í meðferð. Mun þetta skref vera mikilvægt fyrsta skref í þeirri nálgun.
Stjórn VR hefur beitt sér í og stutt við fjölmörg mál sem snúa að samfélagslegri ábyrgð og er þetta mikilvæga verkefni hluti af þeirri vegferð.
Á myndinni eru Þórir Hilmarsson, stjórnarmaður í VR, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Kristín Ólafsdóttir frá Píeta samtökunum og Dr. Sigríður Björk Þormar, formaður stjórnar Pieta samtakanna.