Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 02.11.2017
VR óskar eftir orlofshúsum til leigu
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 20. nóvember 2017. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með. Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því sem henni fylgir
- Ástand íbúðar og staðsetning
- Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
- Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni