Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 03.11.2021
VR óskar eftir orlofshúsum
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsfólk sitt. Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 22. nóvember 2021. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því sem henni fylgir
- Ástand eignar og staðsetning
- Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
- Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni.
- Öllum tilboðum verður svarað.