Nova6

Almennar fréttir - 31.01.2025

VR býður félagsfólki sínu starfsþróunarráðgjöf

VR heldur áfram að bjóða félagsfólki sínu starfsþróunarráðgjöf, eins og síðastliðinn vetur. Starfsþróunarráðgjöfin er í umsjón náms- og starfsráðgjafa hjá Mími símenntun. Viðtölin eru félagsfólki að kostnaðarlausu og fer skráning þeirra fram á Mínum síðum.

Viðtölin eru til þess fallin að veita stuðning og upplýsingar um mögulegar leiðir til frekari starfsþróunar. Með starfsþróun er átt við mikilvægi þess að vaxa og þróast í starfi. Áherslan er ekki endilega á að skipta um starfsvettvang eða breyta verkefnum heldur fyrst og fremst að móta nýjar aðferðir við að sinna núverandi starfi og verkefnum í síbreytilegu umhverfi og kynna sér þær leiðir sem í boði eru.

Við hvetjum félagsfólk einnig til að kanna hvort verkfærin á Starfsþróunarsíðu VR geti nýst í starfsþróunarvegferð þeirra sem stefna að og hafa áhuga á slíkri framþróun.

Nánar upplýsingar hér.