Almennar fréttir - 11.01.2022
Viltu leggja þitt af mörkum í starfi VR?
Uppstillinganefnd VR óskar eftir frambjóðendum til trúnaðarráðs VR. Áhugasöm geta gefið kost á sér með því að senda erindi á netfangið uppstillinganefnd@vr.is fyrir kl. 12.00 á hádegi þann 21. janúar næstkomandi.
Í samræmi við lög VR óskar uppstillinganefnd eftir frambjóðendum til að skipa lista stjórnar og trúnaðarráðs vegna listakosningar um trúnaðarráð í félaginu.
Uppstillinganefnd stillir upp lista til trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið eins og mögulegt er hvað varðar aldur, kyn og störf félagsfólks. Einnig verður litið til félagsaðildar og starfa fyrir félagið. Hlutverk trúnaðarráðs VR er að vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis stærri málefni sem upp koma í starfsemi félagsins, svo sem við gerð kjarasamninga og stærri framkvæmdir.