Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 12.01.2021
Viltu leggja þitt af mörkum í starfi VR?
Uppstillinganefnd VR óskar eftir frambjóðendum til trúnaðarráðs VR. Áhugasöm geta gefið kost á sér með því að senda erindi á netfangið uppstillinganefnd@vr.is fyrir kl. 12:00 á hádegi þann 22. janúar næstkomandi.
Uppstillinganefnd stillir upp lista til trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið eins og mögulegt er hvað varðar aldur, kyn og störf félagsmanna. Einnig verður litið til félagsaðildar og starfa fyrir félagið.
Hlutverk trúnaðarráðs VR er að vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis stærri málefni sem upp koma í starfsemi félagsins, svo sem við gerð kjarasamninga og stærri framkvæmdir.
Uppstillinganefnd VR