Almennar fréttir - 23.01.2025
Vilt þú starfa í forystu VR?
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum til formanns og í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi, mánudaginn 3. febrúar.
Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til formanns, til sjö sæta í stjórn og þriggja til vara. Skrifleg meðmæli 50 VR félaga þarf vegna einstaklingsframboðs til formanns og 15 þarf vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar. Vinsamlega athugið að kjörtímabil formanns og aðalmanna í stjórn er nú fjögur ár í stað tveggja áður. Kjörtímabil varamanna í stjórn er nú tvö ár í stað eins áður.
Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillinganefndar VR sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 300 VR félaga sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.
Athygli er vakin á því að samkvæmt lögum VR er einstaklingi óheimilt að skipa sæti samtímis á lista til trúnaðar ráðs og vera í framboði til formanns eða stjórnar félagsins.
Kjörstjórn VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is. Framboðum og framboðslistum skal skilað til kjör stjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
23. janúar 2025
Kjörstjórn VR