ASI Vefkubbur2 (1)

Almennar fréttir - 23.08.2024

Vilt þú sitja ASÍ þing fyrir VR?

46. þing ASÍ verður haldið dagana 16. - 18. október 2024 á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík. Yfirskrift þingsins er Sterk hreyfing – sterkt samfélag. Dagskrá og þingskjöl má finna á þingvef ASÍ.

VR leitar að fulltrúum félagsins á þingið. Ef þú vilt gefa kost á þér sem fulltrúi VR á þinginu vinsamlega sendu nafn og kennitölu á netfangið vr@vr.is fyrir kl. 12:00 á hádegi þann 30. ágúst. Fullgildir VR félagar geta gefið kost á sér.

Þar sem fjöldi er takmarkaður er ekki víst að allir sem bjóða sig fram muni hljóta sæti á listanum. Einnig verður stillt upp lista varafulltrúa.

Listi yfir þingfulltrúa verður borinn undir félagsfund VR í september.