Almennar fréttir - 22.01.2024
Vetrarúthlutun frestað
Félagsfólk vinsamlega athugið að vegna bilunar í orlofskerfi hefur verið ákveðið að fresta vetrarúthlutun orlofshúsa.
Úthlutun fer fram mánudaginn 5. febrúar næstkomandi kl. 12:00.
Þessi bilun hefur ekki áhrif á umsóknir vegna sumarúthlutunar.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.