Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 19.03.2019
Veiðikortið er komið í sölu
Fullgildum félagsmönnum VR stendur til boða að kaupa Veiðikortið fyrir sumarið 2019. Veiðikortið veitir nær ótakmarkaðan aðgang að fjölda vatnasvæða vítt og breitt um landið. Handbók fylgir hverju korti þar sem má finna leiðbeiningar og reglur. Kortið kostar 4.800 kr. og getur hver fullgildur félagsmaður keypt eitt kort.
Hægt er að kaupa Veiðikortið á Mínum síðum og á skrifstofum VR.