Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Tjaldsvæði.JPG

Almennar fréttir - 25.05.2023

Útilegukortið er komið í sölu

Fullgildu félagsfólki VR stendur til boða að kaupa útilegukortið fyrir sumarið 2023. Kortið veitir tveimur fullorðnum og allt að fjórum börnum upp að 16 ára aldri gistingu á tjaldsvæðum víðsvegar um landið. Kortið kostar 12.600 krónur og getur hver fullgildur félagi keypt eitt kort.

Hægt er að kaupa útilegukortið á Mínum síðum eða á skrifstofum félagsins.