Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 04.01.2021

Um bókanir orlofshúsa

Við viljum minna félagsmenn VR á að til að bóka orlofshús félagsins þarf að skrá sig inn á Mínar síður, annað hvort með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2021 og fram á mitt ár 2022 sem hér segir:

Þann 6. janúar 2021 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2021 (tímabilið 28. maí til 27. ágúst), fyrir þá sem ekki hafa leigt orlofshús undanfarin þrjú sumur.
Þann 8. janúar 2021 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2018, 2019 eða 2020.
Þann 14. janúar 2021 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 27. ágúst 2021 til 3. júní 2022.

Á orlofsvef VR er að finna allar upplýsingar um orlofshús VR og tímabil. Til að bóka og greiða fyrir orlofshús eða aðra orlofsþjónustu VR þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Hægt er að skrá sig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Einnig er tekið við bókunum í þjónustuveri VR í síma 510 1700 frá kl. 19:00 þann 6. janúar.

Vinsamlega athugið að allar skrifstofur VR eru lokaðar og verður því ekki hægt að koma til okkar til þess að bóka. Er þetta vegna heimsfaraldurs Covid-19.