Almennar fréttir - 03.01.2020
Um bókanir orlofshúsa
Við viljum minna félagsmenn VR á að til að bóka orlofshús félagsins þarf að skrá sig inn á Mínar síður, annað hvort með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2020 og fram á mitt ár 2021 sem hér segir:
- Þann 7. janúar 2020 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2020 (tímabilið 29. maí til 30. ágúst), fyrir þá sem ekki hafa leigt orlofshús undanfarin þrjú sumur.
- Þann 9. janúar 2020 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2017, 2018 eða 2019.
- Þann 15. janúar 2020 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 31. ágúst 2020 til 28. maí 2021.
Skrifstofa VR í Reykjavík verður opin að kvöldi 7. janúar frá kl. 18:50-20:00 og geta þeir félagsmenn, sem ekki bóka á vefnum, komið á skrifstofu félagsins til að bóka. Þá verður einnig tekið við bókunum í síma 510 1700 frá kl. 19:00 þann sama dag.
Á orlofsvef VR er að finna allar upplýsingar um orlofshús VR og tímabil. Til að bóka og greiða fyrir orlofshús eða aðra orlofsþjónustu VR þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Hægt er að skrá sig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Athugið að innskráning á Mínar síður VR frá kl. 16:00 - 23:00 þriðjudaginn 7. janúar leiðir notanda beint á orlofsvef VR en ekki verður hægt að sækja um aðra þjónustu hjá VR en að bóka orlofshús. Er þetta gert til þess að draga úr álagi á kerfið á meðan bókanir orlofshúsa standa yfir. Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.