Almennar fréttir - 27.03.2019
Tveggja daga verkfall hjá félagsmönnum VR hefst á miðnætti
Tveggja daga verkfall hjá félagsmönnum VR sem starfa í hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og í gistiþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði hefst á miðnætti í nótt.
VR hvetur þá sem hafa áhuga á að sinna verkfallsvörslu til þess að hafa samband við verkfallsnefnd félagsins á verkfallsnefnd@vr.is eða í síma 510 1700. Einungis starfsfólk vinnustaða sem verkfallið nær til koma til greina í verkfallsvörslu, þ.e. starfsfólk hótela og hópbifreiðafyrirtækja.
Verði félagsmenn varir við verkfallsbrot eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Verkfallsnefnd VR, verkfallsnefnd@vr.is eða í síma 510 1700.
Hægt verður að sækja um styrk úr Vinnudeilusjóð VR á Mínum síðum eftir að verkfallsdögum í mars lýkur. Félagsmenn VR sem verkfallið nær til fá tilkynningu frá okkur í tölvupósti þegar nær dregur. Mikilvægt er að vera með rétt netfang skráð á Mínum síðum svo allar upplýsingar komist til skila.