Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Tjaldsvæði.JPG

Almennar fréttir - 01.06.2022

Tjaldsvæði VR opnar

Tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi hefur nú verið opnað. Félagsfólk bókar sér stæði inni á Orlofsvef VR. Þar má sjá kort af svæðinu og er hvert og eitt stæði tölusett. Vinsamlega athugið að stæði nr. 6 – 14 verða lokuð fyrst um sinn.

Félagsfólk fer inn á Orlofsvef VR og skráir sig inn. Þar er farið í flipann „Laus tímabil“, farið í fellilistann „Flokkur“ og neðst í honum er að finna „Tjaldsvæði Miðhúsaskógi“.

Verð fyrir nótt er 2000 kr.

Aldurstakmark til að bóka tjaldstæði er 20 ár, miðað er við árið sem VR félagi verður 21 árs.

Tjaldsvæðið er aðeins ætlað félagsfólki VR og fjölskyldum þeirra en félagsfólk getur boðið gesti/gestum til að dvelja með sér á tjaldsvæðinu, þó aldrei meira en sem samsvarar einu tjaldstæði. Heimilt er að hafa gæludýr á tjaldsvæðinu. Hámarksdvöl á tjaldsvæðinu er tíu dagar.

VR félagar geta tekið á leigu tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíla af viðurkenndum leiguaðilum og fengið niðurgreiðslu frá VR gegn framvísun kvittunar. Niðurgreiðslan er 5.000 kr. pr. nótt en þó að hámarki 30.000 kr. fyrir hvert orlofstímabil. Greitt er eftir að dvöl lýkur gegn fullri greiðslu fyrir vagninn, leigutímabil þarf að koma fram á kvittun.

Sjá nánar um tjaldsvæðið hér.