Almennar fréttir - 07.06.2023
Tjaldsvæði VR opnar
Tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi hefur nú verið opnað. Félagsfólk bókar sér stæði inni á Orlofsvef VR. Þar má sjá kort af svæðinu og er hvert og eitt stæði tölusett.
Farið er inn á Orlofsvefinn í flipann „Laus tímabil“ og þar er farið í fellilistann „Flokkur“ og neðst í honum er að finna „Tjaldsvæði Miðhúsaskógi“.
Verð fyrir nótt með rafmagni er 2000 kr.
Aldurstakmark til að bóka tjaldstæði er 20 ár, miðað er við árið sem VR félagi verður 21 árs.
Tjaldsvæðið er aðeins ætlað félagsfólki VR og fjölskyldum þeirra en félagsfólk getur boðið gesti/gestum til að dvelja með sér á tjaldsvæðinu, þó aldrei meira en sem samsvarar einu tjaldstæði. Heimilt er að hafa gæludýr á tjaldsvæðinu. Hámarksdvöl á tjaldsvæðinu er tíu dagar.
VR félagar geta tekið á leigu tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíla af viðurkenndum leiguaðilum og fengið niðurgreiðslu frá VR gegn framvísun kvittunar. Niðurgreiðslan er 5.000 kr. pr. nótt en þó að hámarki 30.000 kr. fyrir hvert orlofstímabil. Greitt er eftir að dvöl lýkur gegn fullri greiðslu fyrir vagninn, leigutímabil þarf að koma fram á kvittun.