Almennar fréttir - 06.08.2018
Til hamingju með daginn verslunarfólk!
VR minnir á að frídagur verslunarmanna er stórhátíðardagur en á slíkum dögum hafa almennir starfsmenn ekki vinnuskyldu. Því ber að greiða fyrir stórhátíðardaga með dagvinnukaupi þó þeir séu ekki unnir, komi slíkur dagur upp á hefðbundnum vinnudegi starfsmanns. Hafi launamaður samþykkt að vinna á stórhátíðardegi skal greiða honum, auk dagvinnukaups, stórhátíðarkaup, sem er reiknað þannig að föst mánaðarlaun eru margfölduð með 1,375% og fæst þá út tímakaup á stórhátíðardegi.
Frídagur verslunarmanna var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í Reykjavík þann 13. september 1894 og mætti kalla þennan dag fyrsta vísi að orlofi launafólks á Íslandi, en ekki tíðkaðist að veita launafólki sumarfrí. Hægt er að lesa meira um frídag verslunarmanna á vef VR hér.
Nánari upplýsingar um stórhátíðarálag og vinnu á frídögum má sjá hér.