Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 09.03.2017
Þátttaka í kosningum til formanns og stjórnar VR 9. mars
Um kl. 11:30 í morgun, þann 9. mars 2017, höfðu alls 2.682 félagsmenn VR kosið í allsherjaratkvæðagreiðslu til formanns og stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2017 til 2019 en hún hófst kl. 9:00 að morgni 7. mars. Á kjörskrá er 32.721 félagsmaður. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12:00 á hádegi 14. mars.
Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér frambjóðendur og nýta atkvæðisrétt sinn. Atkvæðagreiðsla er rafræn, sjá hér aðgang að atkvæðaseðli og nánari upplýsingar um frambjóðendur.