Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Almennar fréttir - 05.04.2019
Stytting vinnuvikunnar hjá félagsmönnum VR
Í nýjum kjarasamningi VR við SA, sem undirritaður var 3. apríl sl. var samið um styttri vinnuviku félagsmanna VR um 45 mínútur á viku frá og með 1. janúar 2020. Útfærsla styttingar er í höndum hvers vinnustaðar fyrir sig. Atvinnurekendur skulu hafa samráð við launamenn um tillögu að útfærslu vinnutímastyttingar á grundvelli eftirfarandi kosta:
- Hver dagur styttist um 9 mínútur
- Hver vika styttist um 45 mínútur
- Safnað upp innan ársins
- Vinnutímastyttingu með öðrum hætti
Vinnutímastytting tekur gildi 1. janúar 2020. Samkomulag um framkvæmd vinnutímastyttingar skal hafa náðst fyrir 1. desember 2019. Ef samkomulag næst ekki styttist vinnutími um 9 mínútur á dag miðað við fullt starf.
Sjá nánar um styttingu vinnuvikunnar á vef VR hér.