Vr Husid 2020 Prent

Almennar fréttir - 12.12.2024

Stjórn VR fordæmir atlögu SVEIT að réttindum launafólks

Stjórn VR fordæmir atlögu atvinnurekenda innan SVEIT, samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, að réttindum og kjörum launafólks á Íslandi. SVEIT hefur stofnað gult stéttarfélag sem gengur undir heitinu Virðing og útbúið „kjarasamning“ sem felur í sér beinar kjaraskerðingar fyrir starfsfólk í veitinga- og gistihúsageiranum. Virðing uppfyllir ekki grundvallarkröfur sem gerðar eru til stéttarfélaga, heldur er um að ræða félag sem er stofnað af atvinnurekendum sem síðan semja við sjálfa sig, fremur en að semja við starfsfólk. Þar með flokkast Virðing sem gult stéttarfélag en slík félög grafa undan réttindum og hagsmunum launafólks og ganga í raun erinda atvinnurekenda.

Stjórn VR tekur heilshugar undir gagnrýni Eflingar og SGS á SVEIT og hvatningu um að sniðganga félagið. Virðing beinir spjótum sínum að fólki í viðkvæmri stöðu, erlendu launafólki, ungu fólki og þeim sem þekkja síður réttindi sín á vinnumarkaði. Stjórn VR vill sérstaklega hvetja félagsfólk að hafa samband við VR ef atvinnurekandi fer þess á leit að viðkomandi gangi í Virðingu og/eða vinni eftir svokölluðum „kjarasamningi“ Virðingar. Kjarasamningur Virðingar er í öllum atriðum mun lakari en kjarasamningar VR og felur í sér skerðingu á kjörum starfsfólks í ferðaþjónustu. Launataxtar eru lægri, dagvinnutímabil er lengra og nær inn á laugardag, uppsagnarfrestur er mun lakari sem og veikindaréttur og önnur réttindi eru skert verulega, svo fátt eitt sé nefnt. Kjarasamningur Virðingar gengur að auki gegn lögum um vinnumarkaðinn. Sjá nánar í umfjöllun á vef Eflingar og ályktun miðstjórnar ASÍ.

Framkoma Virðingar og SVEIT er að mati stjórnar VR svívirðileg atlaga að réttindum launafólks og markar afturför í kjarabaráttu. Stjórn VR hvetur launafólk sem og atvinnurekendur til að hafna þessari atlögu. Samstaða á vinnumarkaði er mikilvæg þegar kemur að því að standa vörð um grundvallarréttindi launafólks og á það að vera sameiginlegt verkefni aðila vinnumarkaðarins að tryggja þau.

Reykjavík, 11. desember 2024
Stjórn VR