Kona Ad Bida Bordi Minni

Almennar fréttir - 22.10.2024

Skimun fyrir krabbameini bjargar lífum

Vissir þú að konur eiga rétt á að skreppa úr vinnu til að fara í skimun fyrir krabbameini? VR hvetur konur til að fara í krabbameinsskimanir.

Konur fá boð í skimun fyrir leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini með bréfi og í gegnum vefinn Heilsuvera.is. Það kostar aðeins 500 krónur að koma í skimun. Skimun tekur aðeins um 10 mínútur.

Leghálsskimanir eru framkvæmdar af ljósmæðrum á öllum heilsugæslustöðvum. Konur sem fá boð geta bókað tíma eða mætt í opið hús. Sumar heilsugæslustöðvar eru með opið hús milli klukkan 15 og 17 alla fimmtudaga til 21. nóvember.

Brjóstaskimanir eru framkvæmdar á Brjóstamiðstöð Landspítalans við Eiríksgötu 5 í Reykjavík. Konur sem fá boð geta bókað tíma í síma 543 9560 eða með tölvupósti á brjostaskimun@landspitali.is.

Nánari upplýsingar um skimanir má finna á vefnum skimanir.is.

Þessi frétt er unnin samstarfi við Heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu.