Almennar fréttir - 14.06.2024
Sameining deilda VR á Suðurlandi
Suðurlandsdeild VR hefur tekið til starfa eftir sameiningu deilda félagsins í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi. Sameiningin var samþykkt á ársfundum deildanna í maí og stjórn VR samþykkti í kjölfarið breytingar á starfsreglum á fundi sínum 12. júní.
Deild VR í Eyjum var stofnuð eftir sameiningu VR og Verslunarmannafélags Vestmannaeyja árið 2007 og Deild VR á Suðurlandi var stofnuð eftir sameiningu VR og Verslunarmannafélags Suðurlands árið 2017. Í sameinaðri Suðurlandsdeild VR eru alls um tvö þúsund VR félagar. Markmiðið með sameiningunni er að efla enn frekar þjónustu við félagsfólk á félagssvæði Suðurlandsdeildar.
Engin breyting verður á þjónustu VR við þessa sameiningu, áfram verða reknar skrifstofur í Vestmannaeyjum og á Selfossi með sama sniði og verið hefur og munu þær áfram veita sömu þjónustu. Formaður Suðurlandsdeildar VR er Kolbrún Júlía Erlendsdóttir en í stjórn deildarinnar sitja auk formanns fjórir aðalmenn, þau Ásta Björk Ólafsdóttir, Jónas Yngvi Ásgrímsson, Ragna Steina Snæfells Lárudóttir og Stefán Viðar Egilsson. Til vara eru Haraldur Pálsson, Drífa Kjartansdóttir og Baldvin Nielsen. Kjörtímabil stjórnar er fjögur ár.