Halla Og Ragnar 2024

Almennar fréttir - 03.12.2024

Ragnar Þór lætur af formennsku í VR

Ragnar Þór Ingólfsson hefur látið af formennsku í VR en sem kunnugt er var hann kjörinn á þing í Alþingiskosningunum þann 30. nóvember sl. Ragnar Þór lætur af störfum frá og með deginum í dag, 3. desember 2024. Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR, hefur tekið við sem formaður, í samræmi við starfsreglur stjórnar félagsins, og gegnir formennsku út kjörtímabilið sem lýkur á aðalfundi félagsins í mars árið 2025.

Ragnar Þór Ingólfsson var fyrst kjörinn í stjórn VR snemma árs 2009, örskömmu eftir efnahagshrunið og á miklum umrótatímum. Árið 2017 var hann kjörinn formaður og hefur verið endurkjörinn í þrennum kosningum síðan þá. Ragnar Þór hefur leitt VR í gegnum þrenna kjarasamninga og ýmsar mikilvægar breytingar á þjónustu og starfsemi félagsins. Þar á meðal má nefna stofnun Blævar – íbúðafélags sem mun afhenda sínar fyrstu íbúðir í upphafi nýs árs og marka þannig þáttaskil í húsnæðismálum.

„Ég kveð VR með bæði stolti og söknuði. Ég hef starfað með einstökum hópi bæði kjörinna fulltrúa og starfsfólks. Skrifstofa VR er afar öflug og sem formaður hef ég notið góðs af þeirri fagmennsku sem einkennir öll hennar störf. Ég ber fullt traust til sitjandi stjórnar félagsins og nýs formanns og óska þeim velfarnaðar í sínum störfum,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, alþingismaður og fráfarandi formaður VR.

„Fyrir hönd bæði stjórnar og skrifstofu VR færi ég Ragnari Þór Ingólfssyni bestu þakkir fyrir hans störf í þágu félagsins sem spanna nær sextán ár. Hann hefur verið mjög ötull talsmaður launafólks og almannahagsmuna og verður það áfram í mikilvægum störfum á nýjum vettvangi. Ég tek við góðu búi og við munum halda sterkum tengslum til að vinna áfram saman að hagsmunum okkar félagsfólks. Ég óska Ragnari alls góðs í störfum sem hans bíða núna á nýkjörnu Alþingi,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.