Almennar fréttir - 15.11.2024
Pallborðsumræður stjórnmálaflokkanna í aðdraganda kosninga
Formenn stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis taka þátt í pallborðsumræðum ASÍ og BSRB sem haldnar verða mánudaginn 18. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2. Umræðurnar hefjast kl.17:00 og er áætlað að þeim ljúki kl. 19:00. Boðið verður uppá léttar veitingar.
Yfirskrift fundarins er Samfélag á krossgötum og verður leitað svara hjá fulltrúum flokkanna um stefnur þeirra í málefnum launafólks og vinnumarkaðar. Pallborði stýra forseti ASÍ og formaður BSRB, Finnbjörn A. Hermannsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir.
Við hvetjum ykkur til að mæta og leita svara við spurningum sem á ykkur brenna.