Almennar fréttir - 20.12.2024
Opnunartími VR yfir hátíðirnar
Félagsfólk VR vinsamlega athugið að skrifstofur félagsins verða lokaðar á aðfangadag, 24. desember og gamlársdag, 31. desember. Skrifstofurnar verða að öðru leyti opnar mili jóla og nýárs, að frátaldri skrifstofu VR á Selfossi sem verður lokuð 27. desember. Sjá nánar um opnunartíma skrifstofa félagsins hér.
Allar upplýsingar um sjóði og þjónustu félagsins er að finna á vef okkar, vr.is. Þá er hægt að sækja um í sjóðum félagsins og athuga stöðu sína á Mínum síðum á vr.is. Athugið að síðasti skiladagur umsókna fyrir hátíðirnar var þann 11. desember sl. Sjá nánar hér.
Félagið þakkar fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða og óskar öllu félagsfólki sínu gleðilegrar hátíðar.