Vr Fanar Kringlan 2

Almennar fréttir - 13.03.2025

Niðurstöður kosninga til formanns og stjórnar VR

Kosningum til formanns og stjórnar VR kjörtímabilið 2025-2029, sem stóðu frá 6. mars til kl. 12:00 á hádegi þann 13. mars 2025 er nú lokið. Atkvæði greiddi 9.581. Á kjörskrá voru alls 40.117 VR félagar. Kosningaþátttaka var því 23,88%.

Niðurstöður kosninganna eru sem hér segir:

Formaður VR – til fjögurra ára

Halla Gunnarsdóttir - 45,72% atkvæða

Sjö stjórnarmenn – til fjögurra ára skv. fléttulista eins og kveðið er á um í 20. gr. laga VR

Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir
Ólafur Reimar Gunnarsson
Andrea Rut Pálsdóttir
Karl F. Thorarensen
Jennifer Schröder
Styrmir Jökull Einarsson
Selma Björk Grétarsdóttir

Þrír varamenn í stjórn – til tveggja ára

Þórir Hilmarsson
Birgitta Ragnarsdóttir
Eldar Ástþórsson

Þessir aðilar eru því réttkjörnir skv. 20. gr. laga félagsins og hefst kjörtímabil þeirra á aðalfundi fyrir árið 2025 sem haldinn verður 26. mars.

Sjá hér heildarniðurstöður í kosningunum.